Velkomin á Bónvörur.is

Bónstöð og verslun

Þjónustulýsing

Þrif að utan (Hraðþrif)

Tjöruhreinsir sprautaður á allan bílinn og svo skolaður af með háþrýstidælu, svo er allur bíllinn sápuþveginn og skolaður eftir það er hann þurkaður.

Alþrif og bón

Tjöruhreinsir sprautaður á allan bílinn og svo skolaður af með háþrýstidælu, koppar eða felgur þvegnar með mjög öflugu efni (ekki sýra) og fölsin eru hreinsuð. Bíllinn er sápaður með microfiber þvottahanska og þurrkaður með microfiber handklæði sem bæði kemur í veg fyrir rispur. Borið gljáefni á dekkin og bíllinn að lokum bónaður með bóni. Mælaborð og aðrir plastfletir hreinsaðir að innan, gljáefni borið á helstu svæði, rusli hent og öskubakki tæmdur, rúður þrifnar með rúðuhreinsi, gólfefni og sæti ryksugað, mottur sápu þvegnar.

Leirun

Farið er yfir bílinn með sérstökum leir sem tekur djúp óhreinindi sem sápur og svampur nær ekki burt. Notað er með því sérstakt leir-sleipiefni (Clay Lube) sem lætur leirinn renna eftir lakkinu rispulaust. Eftir slíka meðferð verður lakkið rennislétt og endingin á bónhúðinni gæti allt að tvöfaldast!

Þrif að innan

Hurðaföls eru hreinsuð, mælaborð og annar vinill hreinsaður, rúður hreinsaðar, teppi og sæti ryksuguð, mottur þvegnar, rusli er hent og öskubakki tæmdur.

Djúphreinsun teppa og sæta

Sæti eru djúphreinsuð ásamt sætisbökum og höfuðpúðum, öll teppi m.a. í skotti og hilla ef hún er til staðar. Venjulega þarf að þrífa bíla að innan á eftir.

Vélaþvottur og næring á plast

Vélin þarf að kólna fyrir meðferð. Sprautar er yfir hana tjöruleysi og síðan háþrýstiþvegin og borið næringu á plast fleti

Fyrirtækjalausnir

Vel þrifinn og merktur bíll er besta auglýsing sem fyrirtæki getur haft! Við bjóðum fyrirtækjum að gera við okkur samning um þrif á faratækja flotanum þeirra. Með því að gera samning eru fyrirtæki að spara sér tíma og fyrirhöfn. Með því að taka þrif hjá okkur geta fyrirtæki treyst þvi að bíla flotinn sé hreinn allt árið um kring.

Kostir fyrirtækjalausna

Um okkur

Bónvörur.is er bónstöð, verslun og umboðsaðilar fyrir Autobrite.

Við bjóðum upp á bílaþrif fyrir þá kröfuhörðu! Við leggjum mikla áherslu á gæði og áreiðanleika þegar kemur að öllu sem við gerum. Við notumst eingöngu við hágæða vörur og aðferðir þegar kemur þrifum á þinni bifreið.

Við höfum yfir 15 ára reynslu þegar kemur að þrifum og sótthreinsun

Vörur

  • Autobrite Ceramic Magiseal 500ML – 5 Lítrar

    kr.5.990kr.29.990
  • Autobrite Low-Tack Masking Tape 50MM

    kr.1.390
  • Autobrite Purple Rain – Felgu og body hreinir – 500ML – 1 Líter

    kr.1.990kr.3.490
  • Autobrite Snow Foam Lance & Magifoam Kit Froðubyssa fyrir Lavor

    kr.9.850
  • Autobrite Magifoam Ultimate Snowfoam 1 Líter – 5 Lítrar

    kr.3.490kr.9.990
  • Autobrite Snow Foam Lance & Magifoam Kit Froðubyssa fyrir Karchers K Series

    kr.9.850
  • Autobrite Snow Foam Lance & Magifoam Kit Froðubyssa fyrir Nilfisk/Kew/Alto

    kr.9.850
  • Autobrite Crystal Superior Glass Cleaner 500ML

    kr.1.490